DRAGA

Velkomin í hjarta miðborgarlífsins á Hafnartorgi. Hafnartorg Gallery er áfangastaður helgaður mat, verslun og menningu og er ætlað að vera drifkraftur fjölbreytts mannlífs í nýrri miðborg. Úrvals veitingastaðir fyrir öll tilefni og útvaldar verslanir gera Hafnartorg Gallery að frábærum áfangastað allt árið um kring.

Hafnartorg Gallery

Veitingastaðir

Kualua
Black dragon
Fuego
Akur
Neó
Brand

Verslanir

Bílastæði

Hafnartorg - Bílastæðahús

Undir Hafnartorgi liggur einn stærsti bílakjallari landsins með um 1160 bílastæðum. Aðkoma er frá Hörpu, Pósthússtræti og Austurbakka Reykjavíkurhafnar. Í gegnum bílakjallarann er svo innangengt milli allra húsa á lóðinni.

Í Hafnartorgi Gallery er skjól fyrir veðrum og vindum, stöðugt líf frá morgni til kvölds með reglulegum viðburðum, frábært aðgengi beint upp úr stærsta bílakjallara landsins og nálægð við allt sem miðborgin hefur að bjóða.

Hér er líka frábært að staldra við á leið í önnur ævintýri; upphafspunktur verslunardags í miðborginni, hvíld milli áfangastaða eða staður til að njóta matar og drykkja fyrir menningarviðburðinn.