Beint í efni

Í samstarfi við Dineout Iceland höfum við tekið í notkun einstakt pöntunarkerfi á Hafnartorgi Gallery. Með þessari lausn geta viðskiptavinir í einni pöntun, pantað á mismunandi veitingastöðum og greitt fyrir allt í einni og sömu greiðslu.

Það eina sem þarf að gera er að skanna QR kóða sem staðsettir eru á borðunum. Þá opnast gluggi með matseðlum allra veitingastaðanna, ásamt myndum og upplýsingum. Viðskiptavinir velja sér svo eitthvað við sitt hæfi og greiða í gegnum símann. Hægt er að fylgjast með stöðu pöntunarinnar í rauntíma á vefsíðunni, auk þess sem kerfið sýnir áætlaðan biðtíma hjá hverjum veitingastað. Þegar pöntunin er tilbúin berast SMS-skilaboð í símann.

„Ég tala alveg af eigin reynslu, þegar við fjölskyldan förum saman á Hafnartorg Gallery þá vill hver fá sitt. Mig langar í sushi, maðurinn minn fer beint í steik, eitt barnið vill pizzu og hitt dreymir um mexíkóskt. Eftir matinn langar okkur svo í eftirrétt og kaffi frá sitthvorum stöðunum. Í stað þess að við séum öll á flakki á milli staða að panta og borga, setjum við þetta allt í eina pöntun og greiðum einu sinni. Það gerir upplifunina svo miklu betri – bæði fyrir viðskiptavini  og starfsfólk.“ segir Inga Tinna Sigurðardóttir, forstjóri Dineout ehf. „Það hefur lengi verið þörf fyrir einfalda og straumlínulagaða pöntunarupplifun í mathöllum, þar sem fjölbreytnin er lykilatriði. Nú getur fólk setið saman, pantað í rólegheitum og bætt við fleiri réttum án þess að yfirgefa borðið,“ bætir Inga Tinna við. 

Á næstu vikum verða einnig innleiddir nýir sjálfsafgreiðslukioskar á Hafnartorgi Gallery sem bjóða upp á myndræna framsetningu rétta, hraðari þjónustu og aukna sjálfvirkni með áherslu á einfaldleika og upplifun gesta. 

„Það er ótrúlega gaman að taka þátt í svona tímamótaverkefni þar sem tæknin nýtist til að bæta bæði upplifun gesta og rekstrarlega hagkvæmni fyrir veitingaaðila. Við hjá Heimum erum gríðarlega stolt af því að taka þátt í þessari þróun í samstarfi við Dineout, sem hefur sannarlega sýnt fram á hvað íslenskt hugvit og hönnun getur gert. Það skiptir okkur miklu máli að veitingaeiningar okkar séu nútímalegar, aðgengilegar og faglegar og þessi lausn er stórt skref í þá átt. Þetta er framtíðin og við erum spennt að bjóða gestum okkar að upplifa hana.“ segir Sandra Arnardóttir, markaðsstjóri Smáralindar og Hafnartorgs. 

Við erum virkilega stolt af þessari nýju viðbótarþjónustu og sannfærð um að hún muni nýtast viðskiptavinum vel, sérstaklega fjölskyldum og hópum sem vilja panta og greiða saman með einföldum hætti.

Hér má finna hlekk á pöntunarsíðuna.

Dagsetning
17. júlí 2025
Deila


















DRAGA