
UMAMI
UMAMI
UMAMI er sushi veitingastaður sem býður aðeins upp á hágæða sushi handgert á staðnum úr fyrsta flokks hráefnum. Yfirkokkur UMAMI er Axel Clausen en hann var í Kokkalandsliði Íslands og hefur unnið til margra verðlauna.
UMAMI er ein af fimm grunn bragðtegundunum ásamt söltu, súru, sætu og beisku. Orðið er komið af japanska orðinu Umami (うま味 ) sem lýsir bragðgóðum mat. Einkenni Umami er djúpt bragð sem oft er lýst sem afbrigði af seltu.

UMAMI er staðsett á Hafnartorgi Gallery, Geirsgötu 17.
Skoða vefsíðu UMAMI hér.