Beint í efni

Þula Hafnartorg

Þula Hafnartorg

Þula Hafnartorg er nýtt sýningarrými á Hafnartorgi við Bryggjugötu 6 – vettvangur sem sameinar sýningarrými og faglega ráðgjöf. Reglulegar sýningar eru haldnar í gallerí hluta Þulu Hafnartorg auk ýmissa uppákoma yfir árið. Einstaklingum og fyrirtækjum býðst sérsniðin þjónusta við val á listaverkum með það að markmiði að efla tengingu fólks við myndlist og auðvelda aðgengi að vönduðu listaverkavali.

Þula er rótgróið gallerí með yfir tíu ára reynslu í að kynna og styðja bæði viðurkennda og upprennandi listamenn á sviði samtímalistar. Frá stofnun árið 2013 sem Hverfisgallerí og með sameiningu í Þulu árið 2023, hefur galleríið markvisst unnið að því að skapa vettvang fyrir framúrskarandi myndlist og dýpka skilning á þróun samtímalistar á Íslandi.

Aðalrými Þulu er staðsett í Marshallhúsinu í Reykjavík, þar sem reglulegar sýningar eru haldnar yfir árið í samstarfi við listamenn gallerísins ásamt öðrum valinkunnum listamönnum.

Þula Hafnartorg er staðsett á Bryggjugötu 6, Hafnartorgi.

Skoða vefsíðu Þulu Hafnartorgi hér.

DRAGA