
NEÓ Pizza
NEÓ Pizza
NEÓ Pizza er hluti af Flatey Pizza samsteypunni sem er þekkt fyrir að bjóða upp á vandaðar pizzur í Napólí-stíl. NEÓ Pizza sækir hinsvegar innblástur frá hinum upprunalega New York pizzustíl, en með íslenskum brag og gæðum. Staðurinn leggur mikla áherslu á ferskleika og vandað hráefni og pizzurnar útbúnar af ástríðu.
Matseðillinn á NEÓ sækir innblástur jafnt til New York, Napólí og Reykjavíkur. Þar má þannig finna eitthvað fyrir alla, hvort sem þú kýst klassískar áleggjasamsetningar eða eitthvað aðeins nýstárlegra.

NEÓ Pizza er staðsett á Hafnartorgi Gallery, Geirsgötu 17.
Skoða vefsíðu NEÓ Pizza hér.