Fólkið á Hafnartorgi - Hið Íslenzka Reðasafn
Jóna Kristín Hjartardóttir starfsmanna-og mannauðsstjóri, Steinar Smári Sæmundsson rekstrarstjóri og Þórður Ólafur Þórðarson framkvæmdastjóri og safnvörður. Hið Íslenzka Reðasafn hýsir heimsins stærstu sýngu af reðrum frá um 93 dýrategundum.
„Við fáum til okkar mjög fjölbreyttan hóp fólks allstaðar að úr heiminum. Safnið er þess eðlis að meirihluti fólks kemur inn til okkar í góðu skapi og er tilbúið til þess að hlæja og læra eitthvað nýtt. Starf okkar er mjög fjölbreytt þar sem við sinnum gestum sem koma inn um dyrnar hjá okkur, við vinnum í því að þróa safnið og veitingastaðinn stanslaust svo að heildarupplifun gesta okkar sé sem best en einnig er stór hluti af starfinu fólginn í því að koma fram í sjónvarpsþáttum erlendis og svara viðtölum og spurningum frá erlendum fréttamiðlum.“
“Það koma oft skemmtilegar spurningar frá kúnnum okkar og fólki finnst gaman að segja okkur brandara. Við erum ekki viss hvort kúnnarnir okkar séu minna feimnir en gengur og gerist eða hvort fólk komi hreinlega bara út úr skelinni við það að labba inn á typpasafn!“

„Hafnartorg er frábærlega staðsett fyrir safnið okkar. Okkar kúnnahópur er að lang stærstum hluta erlendir ferðamenn og því skiptir staðsetningin okkur miklu máli. Einnig er hverfið nútímalegt og þegar við fluttum á Hafnartorg þá var markmiðið einmitt að setja safnið í nútímalegri búning sem er í stíl við Hafnartorgs-svæðið.“
„Það er gaman að vinna í miðbænum þar sem er alltaf líf og fjör og helsti kostur Hafnartorgs er að okkar mati sá að það er mjög miðsvæðis en þó ekki þannig að það þrufi að keyra þröngar götur og leita að stæði í langan tíma til að komast þangað. Það er líka alltaf gaman að geta kíkt yfir í búðirnar hjá nágrönnunum eða fara yfir á Gallery Hafnartorg mathöllina þar sem er gott að fá sér góðan mat og drykk.“

