Fólkið á Hafnartorgi - Mikado
Grafísku hönnuðirnir Aron Freyr Heimisson og Einar Guðmundsson reka og eiga verslunina Mikado á Hafnartorgi. Mikado er hönnunarrými og lífstílsverslun með sterka áherslu á japanska og skandinavíska fagurfræði. Verslunin býður gestum að uppgötva úrval af ilmvötnum, húsgögnum, lýsingu og lífsstílsmunum sem hafa sannað sig í gegnum hönnun, efni og handverk og búa yfir einstakri fagurfræði sem hvetur til núvitundar.
„Hugmyndin að því að opna á Hafnartorgi hafði lengi blundað í okkur áður en við tókum skrefið. Við vildum opna rými þar sem við gætum samtvinnað verslun, grafíska hönnun og prent, en við erum einmitt með vinnustofu inn af versluninni. Til að byrja með sáum við þetta fyrir okkur sem litla og kósí vinnustofu þar sem verslun fengi að vera með. Þegar við fluttum svo heim eftir að hafa búið í Portúgal fórum við að skipuleggja þetta betur og af alvöru og þá sáum við fljótt að okkur langaði að taka hugmyndina lengra og opna stærri verslun.“

„Við viljum að fólk finni fyrir ró þegar það kemur til okkar og vilji gefa sér tíma til að skoða vörurnar sem við bjóðum upp á. Það var svona útgangspunktur þegar kom að hönnun rýmisins og við teljum að vel hafi tekist til. Öllum vörum er stillt vandlega upp og við erum ekki mikið í því að setja of mikið fram í einu, viljum frekar gera hlutunum hátt undir höfði því oftar en ekki eru þetta vörur með mikla sögu sem nær áratugi, ef ekki hundruði ára, aftur í tímann.“
„Fyrir okkur snýst góð hönnun um að finna hið fullkomna jafnvægi á milli fegurðar og virkni, svo að niðurstaðan þjóni ekki aðeins tilgangi sínum vel, heldur veki einnig gleði og vellíðan hjá þeim sem notar hana. Hönnun mótar umhverfi okkar og hefur áhrif á daglegt líf, svo okkur finnst mikilvægt að veita því athygli og velja hlutina í kringum sig af alúð.“

„Miðbærinn iðar af lífi þessa stundina og hefur gengið í gegnum miklar endurbætur á síðustu árum og það er virkilega gefandi að fá að taka þátt í því að móta hinn nýja miðbæ. Reykjavík er að fullorðnast.“
„Hafnartorgs-svæðið er orðið að mjög öflugum áfangastað til þess að njóta í mat og drykk og við nýtum við okkur nándina við frábærar verslanir og veitingastaði hiklaust þegar þannig ber undir.“