Fólkið á Hafnartorgi - La Cuisine
Arthur-Lawrence Sassi, veitingamaður og eigandi La Cuisine á Hafnartorgi. La Cuisine er franskur veitingastaður með norrænu ívafi og er staðsettur í Hafnartorgi Gallery.
„Ég elska hversu fágað Hafnartorgs-svæðið er og mikið lagt í það að ná því besta út úr miðborginni. Það er yndislegt að geta tekið göngutúr við höfnina, borða góðan mat, versla eða njóta þess að skemmta sér, hér er allt sem þú þarft!“
„Það sem er mest gefandi við starfið mitt er þegar viðskiptavinir koma til okkar í vondu skapi en fara út hamingjusamir með matinn og þjónustuna sem það fékk hjá okkur.“
„Eftir að sonur minn kom í heiminn ákvað ég að nú væri rétti tíminn til að fara út í eigin rekstur og byggja upp betri framtíð fyrir fjölskylduna mína. Þegar mér gafst tækifæri til að opna La Cuisine í þessari fáguðu mathöll sem Hafnartorg Gallery er, gat ég ekki slegið hendinni á móti því.“
„Ég vakna á hverjum morgni staðráðinn í því að sjá fyrir fjölskyldu minni og bjóða viðskiptavinum upp á vandaðan mat og góðar stundir á La Cuisine í Hafnartorgi Gallery.“

„Ég hef alltaf elskað að verja miklum tíma í eldhúsinu og notið þess að fylgjast með fjölskyldunni og sérstaklega ömmum mínum elda dásamlegan mat sem ég hef reynt að herma eftir í gegnum tíðina.“
„Sem barn valdi ég frekar að horfa á kokkaþætti á borð við Bon Appétit Bien Sûr tímunum saman í stað teiknimynda eins og flest önnur börn.“
„Ég hef fengið mikinn innblástur úr franskri matargerð og frá svæðinu sem fjölskyldan mín er ættuð og það sést á matseðli La Cuisine.“
„Ég ber mikla virðingu fyrir íslenskum kokkum sem margir hverjir hafa ferðast víða um heiminn og lært erlendis. Síðustu árin hefur standardinn á matargerð hækkað til muna sem mér hefur þótt dásamlegt að vera vitni af og mjög tilkomumikið.“
„Ég elska að íslensk matargerð hefur þessa náttúrulegu næmni sem er mjög ljóðræn á meðan frönsk matargerðartækni og reynsla getur í raun blandað öllu saman til að skapa fullkomið jafnvægi.“
