Collections Kids opnar á Hafnartorgi
Collection Kids er barnafataverslun sem mun opna á Hafnartorgi í byrjun mars og verður hún tíunda verslunin í eigu F&S sem á meðal annars Englabörnin í Kringlunni. Collections kids verður staðsett við hliðina á Collections sem er sömuleiðis í eigu F&S og hefur notið mikilla vinsælda frá opnun árið 2019.

Verslunin mun að einhverju leyti bjóða upp á sömu vörumerki og Englabörnin en leggja aukna áherslu á þekkt og vinsæl merki á borð við Polo Ralph Lauren, Boss, Hugo og Armani. Að auki verða tekin inn ný merki og má þar nefna Kenzo, Marc Jacobs og Levi´s. Boðið verður upp á einstakt vöruúrval og brot af því besta frá hverju merki. Verslunin er hugsuð fyrir börn á öllum aldri þó svo að lagt verði mikið upp úr því að bjóða upp á gott vöruúrval fyrir 10-14 ára þar sem eftirspurn er mikil fyrir þann hóp.


